Skilmálar
Velkomin í vefverslun Martex-Batik sem er í eigu og rekstri Martex-Batik ehf.
Kt. 660707-1740. Hér eftir verður notast við; „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Martex-Batik.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Martex-Batik samþykkir þú þessa skilmála.
1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.
2. VÖRUÁBYRGÐ
Gölluð vara: Vilji svo óheppilega til að vara reynist gölluð eða rangt afgreidd þá greiðir Martex-Batik allan kostnað af því. Vinsamlega sendið tölvupóst á martex@martex.is varðandi gallaða eða ranglega afgreidda vöru.
Endursendingar á vörum þurfa að berast á þetta heimilisfang:
Martex-Batik, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík.
3. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA
Við kappkostum að hafa réttar lýsingar og vörumyndir í vefverslun okkar. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
4. VERÐ
Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Afhendingarleið er valin í lok pöntunar sem getur leitt til aukins sendingarkostnaðs.
5. FERILL PANTANA
Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum.
Sumar vörur eru ekki lagervara hjá okkur heldur sérpantaðar frá byrgja og í þeim tilvikum er afhendingartíminn örlítið lengri. Við munum láta viðskiptavininn vita en afgreiðslutími er þó í flestum tilvikum ekki lengri en nokkrir dagar.
Kvittun fyrir vörukaupum jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Þegar vara er farin í póst berst þér staðfesting þess eðlis. Ekki er boðið upp á rekjanlegar sendingar. Pantanir eru afgreiddar alla virka daga en póstsending getur tekið 1-4 daga.
6. GREIÐSLULEIÐIR
Í vefverslun Martex-Batik er hægt að greiða með korti eða banka millifærslu.
7. GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.
8. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS
Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Undir lok pöntunarinnar flytur síðan þig yfir á https-svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar.
Hins vegar geta gamlir vafrar verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota.
Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.
9. SENDINGAR
Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á en sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda. Einungis er sent innan Íslands og eru allar sendingar Martex-Batik eru sendar með Íslandspósti og Dropp.
10. BREYTINGAR Á PÖNTUN
Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum kl. 8-16. Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana. Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á martex@martex.is.
11. SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLURÉTTUR
Eftir að þú hefur keypt hjá okkur vöru hefur þú 14 daga til að skila henni í verslun okkar að Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum og að greiðslukvittun fylgi með.
Endurgreiðsla nær ekki til flutningskostnaðar sem fellur til við afhendingu eða vöruskil. Vinsamlegast sendið tölvupóst á martex@martex.is fyrir spurningar varðandi skilavöru.
12. GÖLLUÐ VARA
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Martex Batik allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á martex@martex.is varðandi gallaða vöru.
Endursendingar á vörum þurfa að berast á þetta heimilisfang: Martex-Batik, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík.
13. HÖFUNDARÉTTUR
Allt efni í vefverslun, þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu Martex-Batik ehf. og er höfundarvarið.
Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án skriflegs samþykkis okkar.
14. ÁBYRGÐ OG SKULDBINDING
Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager. Við bjóðum upp á endurgreiðslu vara innan 14 daga frá kaupum ef viðkomandi er óánægður með vöruna, en greiðum ekki sendingarkostnað ef vörur eru sendar til baka. Athugið að taka þarf fram hvað það var sem að óánægja var með og pöntunarnúmer skal sent á netfangið martex@martex.is
Við hjá Martex-Batik erum áhugasöm um að vinna með þínu fyrirtæki. Hafðu samband – við erum fús til að gefa þér fjölbreytta og vandaða rágjöf í fatamálum.
Heimilisfang
Bíldshöfða 16
110 Reykjavík
Ísland
Sími: (+354) 414 84 00
Netfang: martex@martex.is
Kennitala: 660707-1740
Opnunartími: 08 :00 – 16:00, skrifstofa og Outlet.